Gáski sjúkraþjálfun er til húsa á eftirfarandi stöðum:
Bolholti 8, 105 Reykjavík
Þönglabakka 1, 109 Reykjavík
Ertu með bakverk?
Er þér illt í öxlinni?
Ertu með verk í hálsi?
Ertu með verk í fæti eða mjöðm?
Við hjá Gáska - sjúkraþjálfun veitum þeim sem þjást af verkjum
í vöðvum og liðum alhliða þjónustu. Markmið okkar er að bæta líðan, hreyfifærni og starfsgetu þeirra sem til okkar leita.
Til að ná sem bestum árangri höfum við sérhæft okkur hvert á sínu sviði. Þannig getum við í senn boðið viðtæka faglega þjónustu og sértækar lausnir.
Við leggjum áherslu á fræðslu, forvarnir og uppbyggjandi æfingameðferð samhliða meðferð sjúkraþjálfara.
Gáski er rótgróin sjúkraþjálfunar- og heilsuræktarstöð sem starfrækt hefur verið síðan 1994.