Æfingasalur
Í Gáska er rúmgóður og vel búinn æfingasalur. Hann nýtist þeim
sem eru í meðferð hverju sinni en einnig getur fólk keypt sér
æfingakort án þess að vera í sjúkraþjálfun.
Sjúkraþjálfari eða
íþróttakennari leiðbeinir og aðstoðar við uppsetningu
æfingaáætlunar og framkvæmd æfinga. Unnt er að bóka tíma
hjá leiðbeinandanum og fá ráðgjöf að kostnaðarlausu.
Salurinn er opinn
8-19 mándaga - fimmtudaga
8-18 föstudaga
9-13 á laugardögum
Opnunartími í sumar (1 júní - 1 september)
8-18 mándag - föstudags. Lokað um helgar.
Einkaþjálfun
Gáski – sjúkraþjálfun var með þeim fyrstu til að bjóða
einkaþjálfun
hér á landi. Frá upphafi hefur öll þjálfun
verið miðuð
við þarfir
hvers
viðskiptavinar og er enn.
Þeir sem óska eftir
einkaþjálfun fá
viðbótarþjónustu
s.s. mælingar og aukið eftirlit.
Áhersla er lögð á fleiri þætti en þyngd og ummáli, m.a.:
* Markvissa einstaklingsbundna þjálfun
* Áherslu á líkamsstöðu og rétta framkvæmd æfinga
* Mælingar á líkamsástandi
* Ráðgjöf um fæðuval
* Eftirlit með ástundun og árangri
* Reglulegt endurmat á markmiðum
Mælingar og eftirlit
Gáski býður einstaklingum og fyrirtækjahópum upp á mælingar á· Þolpróf
· Mjólkursýrumæling
· Fituhlutfall
· Blóðfitumagn
· Blóðþrýstingur
· Skoðun sjúkraþjálfara